3. febrúar 2026
Til matargesta í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs.
Framleiðslueldhúsinu á Vitatorgi hefur verið lokað en þar er sá matur sem borinn er fram í félagsmiðstöðvum velferðarsviðs framleiddur. Af þessum sökum verður ekki hægt að bera fram heitan mat á félagsmiðstöðvum. Unnið er að því að leysa málið sem allra fyrst. Frekari upplýsingar verða veittar eins fljótt og hægt er.
